Einn laus tími fyrir áramót í Vísindasmiðjunni

Nú streyma nemendur í Vísindasmiðjuna ásamt kennurum sínum og er mikið líf á hverjum degi. Aðsókn er sem fyrr mjög mikil og er rétt að benda á að aðeins einn tími er laus fyrir áramót, föstudagurinn 17. nóvember klukkan 9:15. Áhugasömum er bent á að hafa hraðar hendur en skráning fer fram hér. 

Ekki er annað að heyra á gestum Vísindasmiðjunnar en heimsóknin sé skemmtileg og fræðandi í senn og er starfsfólk smiðjunnar fullt eftirvæntingar að takast á við komandi áskoranir. Í vetur eru 12 starfsmenn í Vísindasmiðjunni með mismunandi bakgrunn í heimi vísinda. Heimsókn í Vísindasmiðju Háskóla Íslands góð viðbót við kennslu í náttúrugreinum fyrir 5. - 10. bekk.