Nemendur frá Vestmannaeyjum í heimsókn

Reglulega fáum við heimsóknir í Vísindasmiðjuna frá skólum utan höfuðborgarsvæðisins. Nemendur frá Grunnskólanum í Vestmannaeyjum heimsóttu okkur síðastliðin miðvikudag en þau voru í menningarferð til Reykjavíkur. Auk þess sem nemendurnir heimsóttu Vísindasmiðjuna fóru þau t.a.m. á söfn í borginni.

Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari var í Vísindasmiðjunni og tók myndir af nemendum frá Eyjum. Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá hér.