Nýjung á vefsíðunni: Spurt og svarað

Í lok heimsóknar í Vísindasmiðjuna gefst gestum kostur á að svara þjónustukönnun smiðjunnar. Er það gert til að halda við stöðugri þróun og koma til móts við gesti. Nú höfum við svarð nokkrum þessara spurninga og birt undir liðnum Ítarefni hér á síðunni. Ekki er þó búið að svara öllum spurningum enda vísindin þess eðlis að kveikja ætíð fleiri spurningar.

Spurningunum sem er svarað er m.a. Hvernig verður maður vísindamaður? og Er gaman að vinna hérna? Spurt og svarað má finna hér.