Vísindasmiðjan farin af stað á nýju ári

Fyrsta vika nýs árs í Vísindasmiðjunni er liðin og sú næsta bankar á dyrnar. Sem fyrr er mikið líf og fjör í Vísindasmiðjunni en auk þess að taka á móti gestum líkt og áður stöndum við fyrir forritunarnámskeiðum fyrir grunnskólakennara. 

Rétt er að benda áhugasömum á að aðeins eru örfáir tímar lausir fram á vor en tímapantanir fara fram hér: http://hi.lausn.is/IceUniBooking/swreg#!SWstepfirst

Meðfylgjandi er mynd úr heimsókn ungmenna úr Snælandsskóla í síðustu viku.