Kennarasmiðja - Ljósakassinn

Kennarasmiðja - Ljósakassinn

Tveggja tíma námskeið fyrir þá kennara sem vilja kynna sér og nýta Ljósakassann í kennslu. Á námskeiðinu verður farið ýtarlega yfir innihald kassans og verklegar æfingar. Einnig verður farið í verkefni og námsefni sem hægt er að vinna í tengslum við kassann.

Sameinuðu þjóðirnar útnefndu árið 2015  sem Alþjóðlegt ár ljóssins með það að markmiði að vekja fólk tilvitundar um hlutverk ljóss og ljóstækni í daglegu lífi. Háskóli Íslands fagnaði þessu með margvíslegum hætti og var m.a. opnað sérstakt ljósaherbergi í Vísindasmiðjunni. Einnig útbjó Vísindasmiðjann Ljósakassann sem gjöf til allra grunnskóla á landinu. Ljósakassinn hefur að geyma fjölbreytt kennslugögn og leiðbeiningar sem tengjast ljósinu sem fyrirbæri og hefur verið notaður mikið í grunnskólum landsins. Það er okkur því mikil ánægja að geta boðið upp á þetta námskeið, sérstaklega fyrir nýja kennara sem ekki hafa haft tækifæri á að kynna sér kassann nú þegar.

Upplýsingaefni um innihald ljósakassans má svo alltaf nálgast á síðu ljósakassans hér á vef Vísindasmiðjunnar.

Dagsetning: 
Monday, February 4, 2019 -
13:00 to 15:00