Legoforritunarsmiðja fyrir foreldra

Í UTmessu-vikunni buðu Vísindasmiðjan og Háskóli Íslands upp á vinnusmiðju fyrir foreldra í forritun LEGO Mindstorms þjarka sem notaðir eru í Legokeppni grunnskólanna (First Lego League).
Í vinnusmiðjunni, sem haldin var fimmtudaginn 6. febrúar, var Legokeppnin kynnt stuttlega og farið yfir helstu skipanir í forritunarumhverfinu og virkni skynjara.  Síðan fengu foreldrar að spreyta sig á að forrita legoþjarkana og leysa þrautir. Unnið var í hópum og fékk hver hópur sinn þjark.

Markmiðið með smiðjunni var að veita foreldrum tinnsýn í það starf sem börnin taka þátt í er þau skrá sig til leiks í Legokeppninni, sem og þeim tækifærum sem í boði eru með að nýta legoforritunina í leik, starfi og kennslu á borð við stærðfræði.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og fyrir skemmtilega vinnustofu.