Vísindaleikir í vetrarfríi

Í tilefni vetrarfrís grunnskólanna bauð Vísindasmiðjan upp á spennandi verkefni fyrir börn starfsmanna Háskóla Íslands. Á boðstólum voru stöðvar með mismunandi þemum; hópefli og leikir í boði menntavísindasviðsnema og starfsfólk Vísindasmiðjunnar bauð upp á efnafræðismiðju,hljóð- og rafrásasmiðju og leik. Eftir hádegi var svo að sjálfsögðu boðið upp á bíó og popp í Háskólabíói. Vel heppnaður dagur.

Myndir frá þessum degi má sjá hér á Facebook síðu Háskóla Íslands