DNA einangrun

Það er tilvalið að vinna þessa tilraun í smáum hópum eða jafnvel í pörum ef nóg er til af glerglösum, krukkum, tilraunaglösum eða álíka ílátum.

Tilraunin gengur út á að einangra DNA úr frumum lauks. Hún er tiltölulega auðveld í framkvæmd en skilur eftir sig smávegis uppvask. Hægt er að skala tilraunina upp eftir þörfum. Sú uppskrift sem gefin er að neðan nægir fyrir tvær til þrjár "keyrslur" en til að skala hana upp þarf einfaldlega að tvöfalda innihaldsefnin. Með "keyrslur" er átt við um fyrir hversu marga einstaklinga eða hópa innihaldsefnin duga.

Efni fyrir þrjá einstaklinga:

  • Laukur, maukaður í blandara
  • Vatn (30 mL)
  • Salt (1/2 teskeið)
  • Uppþvottasápa (nokkrir dropar)
  • Etanól (>70%) Betra er að hafa það kalt svo gott að geyma það í frysti. Best er að nota etanól en fljótandi handspritt virkar.

Tækjabúnaður

  • Fínt sigti eða jafnvel tesía, en kaffisía virkar líka vel.
  • Mortel til að merja laukinn. Þetta má líka gera með öðrum verkfærum, og jafnvel blandara ef nóg efni er sett í hann.
  • Skeið.
  • Glas, krukka eða skál sem passar fyrir sigtið/síuna.
  • Tannstönglar (valkvæmt).

Framkvæmd

1

Skerið lauk og merjið til að ná safanum úr.
Þetta skref brýtur upp frumuveggi lauksins og hleypir innihaldi frumnanna út í vökvann.

2

Hellið blandaða laukvökvanum ofan í glasið í gegnum sigti.
Frumuveggir og trefjar verða eftir í sigtinu en innihald frumnanna, þar á meðal DNA, lekur í gegnum sigtið.

3

Bætið uppþvottasápu og salti út í sigtaða laukvökvann. Um hálf teskeið af uppþvottalegi og ein teskeið af salti hentar fyrir dágóða botnfylli í venjulegu glasi.
Sápan bindur frumuhimnur og kjarnhimnur lauksins. DNA-flæðir þannig auðveldlega út í saltlausnina. DNA leysist mun betur upp í saltvatni en í venjulegu vatni. Þess vegna er mikilvægt að muna eftir saltinu.

4

Blandið vel en hrærið varlega.
Ef hrært er of ákaflega freyðir uppþvottasápan og erfitt getur verið að sjá DNA-ið fyrir loftbólum.

5

Valkvæmt skref: Leggið laukvökvann í nokkrar mínútur á ofn í stofunni til að hita hann. Sömuleiðis er hægt að setja ílátið með lauksafanum í heitt vatn, en passið að sulla ekki!
Hitun losar prótein frá DNA-inu. Saltið í lausninni hjálpar einnig til við að binda próteinin við hærri hita. Hægt er að komast hjá þessu skrefi með því að bæta meltingarensímum út í lausnina, t.d. með því að setja smá ananassafa út í lausnina í upphafi.

6

Hallið glasinu og hellið ísköldu etanóli (eða fljótandi handspritti) varlega niður eftir glasveggnum svo það leggist ofan á lauksafann. Það er ágætt að hafa álíka mikiðð af etanóli og lauksafa.
Etanólið er eðlisléttara og flýtur því ofaná. Etanólið þarf ekki að vera kalt, en það hjápar við að fella út DNA-ið og verður þykkara og auðveldara að láta leka varlega..

7

Bíðið og fylgist með. DNA-þræðir eiga þá að byrja að birtast á skilum vökvanna tveggja og fljóta upp í etanólið.

Nú ættuð þið að hafa séð DNA!

Ítarefni

Hér eru nokkrar ábendingar frá Jóa um framkvæmd tilraunarinnar: