SciSkills 2.0

Hópur þátttakenda í SciSkills 2.0 verkefninu.
SciSkills 2.0 er NordPlus-verkefni þar sem þátttökustofnanirnar deila reynslu af forritunarsmiðjum og þróa vinnusmiðjur tengdar símenntun kennara á sviði forritunar. Þátttökustofnanirnar eru AHHAA, Teknikens Hus og Vísindasmiðjan. Verkefnið skiptist í þrjá þætti:

Reynsla af forritunarsmiðjum

Teknikens Hus hefur meðal annars verið að vinna með hliðræna forritun, þar sem fólk, frekar en tölvur, er „forritað“, BlueBot þjarka fyrir yngri gesti og Micro:bit forritun. AHHAA hefur meðal annars fengist við eldspýtnastokkamyllu og Arduino Digispark.
Unnið með forritun og rafbúnað í SciSkills 2.0 verkefninu.
Vísindasmiðjan hefur unnið með Lego Mindstorms, Code.org verkefni og Scratch. Fyrir þetta verkefni var ákveðið að leggja áherslu á Scratch og forritun á stýringum fyrir áþreifanlega hluti. Sett voru upp eftirfarandi verkefni: Lausnir á þessum verkefnum er að finna í þessu Scratch stúdíói.

Afurðir samstarfsins

Meginafurð samstarfsverkefnisins var SciSkills 2.0 kennarasmiðjan og kennsluefni í forritun sem notað er í námskeiðum Háskólalestarinnar og Háskóla unga fólksins. Einnig var sett saman hugmyndakver með verkefnahugmyndum úr námskeiðum SciSkills 2.0 verkefnisins.
Nordplus AHHAA Vísindasmiðjan