Vidubiology

Menntavísindasvið, í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands, tók þátt í Erasmus-verkefninu Vidubiology sem fjallar um að vekja áhuga og dýpka skilning barna og unglinga á líffræðilegum viðfangsefnum með notkun myndmiðlunar.
Að nota ljósmyndun og myndvinnslu í náttúrufræðikennslu gefur fjölmörg tækifæri til að nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt og efla áhuga hjá fjölbreyttum nemendahópi.
Lögð er áhersla á virkni nemenda og unnið er út frá leitaraðferð þar sem nemendur nýta sér myndatökur við rannsóknir sínar. Þessi aðferð hentar börnum og unglingum á öllum skólastigum, en í námskeiðinu var lögð áhersla á grunnskólastigið.
Samstarfsaðilar í verkefninu komu frá Þýskalandi, Bretlandi og Búlgaríu. Þáttakan fól í sér þróun á kennsluefni og kennaranámskeið í hverju landanna fjögurra.
Námskeiðið á Íslandi var haldið 13. apríl 2019.