Ljóstvistur tengdur við GPIO pinna
Í þessu verkefni munið þið tengja ljóstvist, LED peru, við Raspberry Pi tölvu með tengivírum og brauðbretti.

Þú þarft:
- Raspberry Pi tölvu
- Brauðbretti
- Ljóstvist, LED peru
- 200–400 Ω viðnám
- Tengivíra, 2x MF og 1x MM
Brauðbrettið

Þið munið nota svokallað brauðbretti til að tengja íhlutina saman. Brauðbrettið er þægilegt til að vinna í því það þarf hvorki að skrúfa neitt, klemma né lóða. Það er nóg að stinga endum íhlutanna í rétt göt.
Götin í brauðbrettinu eru sum tengd saman. Í fyrsta lagi eru það afltengibrautirnar sem merktar eru plús og mínus. Þessar renna eftir langhliðum brauðbrettisins og eru notaðar til að gera afl og jörð aðgengileg á brettinu.
Í öðru lagi eru það raðirnar, en þær eru númeraðar og tengdar saman þvert á aflbrautirnar, eftir skammhlið brauðbrettisins. Göt raðanna eru líka merkt bókstöfum til að hægt sé að vísa í ákveðin göt, t.d. röð 12, dálk c, eða gat 12-c.
Afl og jörð tengd

Byrjum á því að tengja afl og jörð í tengibrautirnar. Hin svokallaða „jörð“ er hér bara neikvæða tengið sem er merkt með mínusmerki. Tengið það úr einhverjum pinna á Raspberry Pi tölvunni sem er merktur með mínus við mínusbraut brauðbrettisins.
Tengið svo pinna sem er merktur „3.3“, fyrir 3,3 Volt, við plúsbraut brauðbrettisins.
Viðnám og ljóstvistur

Tengjum nú viðnám á milli neikvæðu brautarinnar og einhverrar raðar sem þið veljið. Beygið enda viðnámsins í U og stingið öðrum í eitthvert gat neikvæðu brautarinnar og hinum í einhverja röðina. Það skiptir engu máli hvaða röð það er.
Tengjum svo ljóstvist, LED peru, á milli tveggja raða þannig að annar pinninn sé í röðinni sem viðnámið er í, og hinn í annarri.
Athugið: Það skiptir máli hvernig peran snýr. Stutti endinn er neikvæði endinn og þarf því að vísa til jarðar, eða í röðina sem viðnámið er tengt í. Langi endinn fer svo í nýju röðina.
Rásinni lokað

Loks lokum við rásinni með því að tengja röð langa enda ljóstvistsins við jákvæðu brautina með tengivír.