Hexaflexagonaföndur

Leiðbeiningar fyrir hexaflexagonaföndur
Flexagonar eru skemmtileg rúmfræðileg fyrirbæri sem gerð eru úr flötum renningum, oft úr pappír, og brotin og fest saman á ákveðna vegu til að hægt sé að beygla eða velta, „flexa“, þannig að nýjar hliðar vísi út. Til eru ýmsar gerðir flexagona en hér að neðan eru leiðbeiningar fyrir hexa-hexa-flexagon. Sækja útprentanlegar leiðbeiningar

Efniviður

  • Langur renningur, t.d. úr pappír, eða útprentanlegt mynstur
  • Skæri
  • Límstifti
  • Blýantur
  • Skriffæri, skemmtilegt er að hafa liti til að teikna myndir á hliðarnar

Framkvæmd

1
Klipptu út renning sem samanstendur af 19 jafnhliða þríhyrningum. Þú getur prentað út þetta mynstur en eins er hægt að taka langan renning og beygla ítrekað til að marka fyrir þríhyrningana.
Skref 1: framhlið og bakhlið hexaflexagon renninga
2
Merktu þríhyrningana á framhliðinni laust með blýanti, t.d. með tölustöfum 1, 2 og 3, eins og svarar til litanna á myndinni að ofan, auk þríhyrninganna X á framhliðinni og Y á bakhliðinni. Það má merkja bakhliðina með 4, 5 og 6, en þess þarf ekki.
3
Brjóttu renninginn eftir rauðgulu línunni svo úr verði upprúllaður renningur.
Skref 3: renningurinn rúllaður upp
4
Brjóttu svo upprúllaða renninginn eftir rauðgulu línunum svo úr verði sexhyrningur úr eins þríhyrningum. Ef þú merktir þá 1, 2 og 3 ættu allir merktir 1 að snúa upp.
Skref 4: hexaflexagon lokað í sexhyrning
5
Límdu núna X og Y saman með límstifti og þá er hexahexaflexagoninn þinn tilbúinn. Til að flexa hexahexaflexagoninn þinn, brýtur þú þrjú horn hans niður, dalbrot, og þrjú upp, fjallbrot. Ýttu dalbrotunum saman þar til þau snertast og opnaðu miðjuna eins og blóm sem er að springa út.
Það er ekki alltaf hægt að opna miðjuna svo þá þarftu að flexa til baka og reyna aftur. Reyndu nú að finna allar hliðarnar!

Ítarefni