Ljósgreiður: Litróf
Uppsetning
Leggja má ljósgreiður á borð. Tvær eru í römmum til að minnka fingraför. Gætið þess að snerta ekki ljósgreiðuna sjálfa. Fínt er að búa til eða finna ramma fyrir hinar síurnar til að verja þær.
Verkefnahugmyndir

Könnun: Litróf ljóss
Skoðaðu litróf frá mismunandi ljósgjöfum í gegnum ljósgreiðuna: sólarljós, flúrperur, LED perur, kertaljós og rauðgula natríumlampa ljósastaura. Hvaða ljós gefur hvaða regnboga?
Tengd verkefni utan Ljósakassans
Spectral workbench er verkefni þar sem síma er breytt í litrófsgreini sem má m.a. nota til að efnagreina efni eða bara skoða litróf frá mislitum yfirborðum.