Stillið upp spegli í miðju gráðubogans og litlum hlut, t.d. borðleikmanni eins og er í geislarakningarsettinu, beint fyrir framan miðju spegilsins.
Finnið hvar spegilmyndin er með því að stilla upp öðrum samskonar hlut fyrir aftan spegilinn svo þeir virðist báðir vera á sama stað hvort sem horft er í spegilinn eða framhjá honum.
Mæling: Staðsetning spegilmyndar
Stilltu upp hlut fyrir framan spegil og finndu hvar spegilmyndin virðist vera með því að stilla samskonar hlut upp aftan við spegilinn og horfa ýmist í eða framhjá speglinum. Hvar er staðsetning spegilmyndarinnar miðað við fyrirmyndina?
Mæling: Speglunarlögmálið
Sannreynið speglunarlögmálið með því að mæla innfalls- og útfallshorn.
Mæling: Brennivídd spegla
Finnið brennivídd holspegilsins. Finnið brennivídd kúpta spegilsins.
Meira: Hver er brennivídd planspegils?