Fyrstu skref með Microbit

Þessi kennarasmiðja er hugsuð sem kynning á Microbit tölvunni og inngangsverkefnum sem hægt er að vinna með nemendum án mikils tilkostnaðar eða undirbúnings.

Microbit tölvan var hönnuð af BBC sem kennslutæki árið 2015. Hún sameinar ýmsa kosti annarra sambærilegra tækja (t.d. Raspberry Pi og Arduino Uno, fyrir þau sem þekkja til þeirra). Tölvan hefur nokkra skynjara (hröðunar, segulsviðs, ljós), tvo takka, og 5x5 ljóstvista „skjá“. Það er því hægt að búa til forrit sem hægt er að eiga samskipti við, án þess að tengja tölvuna við aukahluti.

Hins vegar er hægt að fá alls kyns viðbætur sem gera tölvuna skalanlega og nothæfa í ýmislegt, eins og farið er yfir í tækjaforritunarsmiðjunni.

Smiðjan er verkleg og Vísindasmiðjan útvegar micro:bit-ana. Mælst er til þess að þátttakendur mæti með fartölvu áþekka því sem nemendur þeirra mundu nota. Ekki er krafist neinnar undirstöðu í forritun.