BaltNord verkefnið

English
Kynning á BaltNord verkefninu í Vísindasmiðjunni.

Veturinn 2016–2017 vann Vísindasmiðjan að Nordplus Horizontal verkefninu
BaltNord network for science communication, sem miðaði að því að auka fjölbreytni og styðja við áframhaldandi þróun vísindamiðlunar í Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndunum.

Verkefnið hófst með stofnfundi 29. september 2016 í vísindasafninu AHHAA í Tartu, Eistlandi. Að verkefninu komu samstarfsaðilar frá Daugavpils University, DU, Lettlandi; AHHAA, Eistlandi; Šiauliai University, SU, Litháen; og Háskóla Íslands, HÍ, Íslandi.

Þættir verkefnisins

  1. Námskeið í vísindamiðlun í Daugavpils, haldið fyrir Letta og Litháa 8.–9. nóvember 2016. Markhópurinn var kennarar, vísindamenn, rannsakendur, akademískt starfsfólk, nemendur, sérfræðingar frá sveitarfélögum og fleiri.
  2. Alþjóðlegt námskeið í Šiauliai, Litháen, fyrir samstarfsaðila 6.–7. desember 2016.
  3. Námskeið í vísindamiðlun í Reykjavík, fyrir Íslendinga 20. mars 2017 og fyrir Eistlendinga, Letta og Litháa 21. mars 2017.
  4. Vísindakeppni í Daugavpils, Lettlandi, fyrir Letta og Litháa í maí 2017.

Tengiliður

Tengiliður verkefnisins á Íslandi var Guðrún J. Bachmann.

Netfang: gudrunba [at] hi.is
Sími: 525 4234 / 864 0124

Samstarfsaðilar

Háskóli Íslands
AHHAA
Daugavpils University
Šiauliai University