SFS vísindasmiðjur á yngstu stigum

Starfshópur vinnur saman við borð í tengslum við SFS vísindasmiðjur.

Fundaröð

Veturinn 2017–2018 setti Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, SFS, í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands saman starfshóp um eflingu vísindakennslu í leikskóla, yngstu stigum grunnskóla og á frístundaheimilum.

Hópurinn fundaði nokkrum sinnum yfir veturinn og lagði grunninn að áframhaldandi vinnu við málaflokkinn.

BlueBot námskeið

Í byrjun árs 2018 keypti SFS BlueBot þjarka til notkunar í forritunarkennslu í leikskólum borgarinnar. Haldin voru tvö námskeið fyrir leikskólakennara og fengu kennararnir svo þjarka að láni til notkunar í skólunum.