Sjóvísindasmiðjur

Sjóminjasafnið rekur sýninguna
Fiskur og fólk
í húsnæði safnsins við Grandagarð. Vísindasmiðjan kom að þróun fjögurra vinnusmiðja tengdri henni.

Vinnusmiðjurnar snúast um staðsetningu skipa á rúmsjó með sextanti, endurkast bylgja eins og notaðar eru í fisksjár, gíra með trissum til hífingar á afla og orkunýtingu farskipa.

Verkefnið tengir saman sjóminjar, eðlisfræði, tækni og verklega vísindamiðlun.