Dósasími og hljóðrör
Hljóðrör
Rörið er afar einfalt tæki: bara sveigjanlegt rör. Hvers kyns fyrirstaða drekkur í sig eða endurkastar hljóðbylgjunum svo með því að beina hljóðinu inn í barkann getur það ekki dreifst út. Hljóðið dofnar vissulega við sífellda árekstra við veggi barkans en tapið við það er afar lítið miðað við það hversu mikið hljóðið mundi dofna með fjarlægð. Barkinn virkar því svipað og ljósleiðari en í góðum ljósleiðara er tapið svo lítið að ljósmerkin geta borist hundruðir kílómetra. Hreyfing lofts hefur líka áhrif á útbreiðslu hljóðs. Þess vegna berst hljóð mun betur í logni en þegar vind hreyfir. Dofnun hljóðs við útbreiðslu án fyrirstöðu fylgir afar einföldu lögmáli. Ef athugandi færir sig tvöfalt fjær hljóðgjafa, til dæmis úr 2 m fjarlægð í 4 m fjarlægð, minnkar hljóðstyrkurinn um fjórfalt. Eins ef athugandinn færir sig þrisvar sinnum fjær minnkar hljóðið um nífalt. Ástæðan er sú að hljóðið dreifist út þannig að orka þess er dreifð í eins konar kúluskel um hljóðgjafann. Flatarmál kúluskeljarinnar er í öfugu hlutfalli við annað veldi geisla kúlunnar og því fæst að hljóðstyrkurinn fellur með þessu tvíveldi.Dósasími
