Ljóstvistur tengdur við GPIO pinna

Í þessu verkefni munið þið tengja ljóstvist, LED peru, við Raspberry Pi tölvu með tengivírum og brauðbretti.

Yfirlitsmynd af Raspberry Pi, brauðbretti, tengivírum og ljóstvisti

Þú þarft:

  • Raspberry Pi tölvu
  • Brauðbretti
  • Ljóstvist, LED peru
  • 200–400 Ω viðnám
  • Tengivíra, 2x MF og 1x MM

Brauðbrettið

Brauðbretti notað til að tengja rafeindaíhluti

Þið munið nota svokallað brauðbretti til að tengja íhlutina saman. Brauðbrettið er þægilegt til að vinna í því það þarf hvorki að skrúfa neitt, klemma né lóða. Það er nóg að stinga endum íhlutanna í rétt göt.

Götin í brauðbrettinu eru sum tengd saman. Í fyrsta lagi eru það afltengibrautirnar sem merktar eru plús og mínus. Þessar renna eftir langhliðum brauðbrettisins og eru notaðar til að gera afl og jörð aðgengileg á brettinu.

Í öðru lagi eru það raðirnar, en þær eru númeraðar og tengdar saman þvert á aflbrautirnar, eftir skammhlið brauðbrettisins. Göt raðanna eru líka merkt bókstöfum til að hægt sé að vísa í ákveðin göt, t.d. röð 12, dálk c, eða gat 12-c.

Afl og jörð tengd

Plús og mínus tengt í brauðbretti frá Raspberry Pi

Byrjum á því að tengja afl og jörð í tengibrautirnar. Hin svokallaða „jörð“ er hér bara neikvæða tengið sem er merkt með mínusmerki. Tengið það úr einhverjum pinna á Raspberry Pi tölvunni sem er merktur með mínus við mínusbraut brauðbrettisins.

Tengið svo pinna sem er merktur „3.3“, fyrir 3,3 Volt, við plúsbraut brauðbrettisins.

Viðnám og ljóstvistur

Viðnám og ljóstvistur sett í brauðbretti

Tengjum nú viðnám á milli neikvæðu brautarinnar og einhverrar raðar sem þið veljið. Beygið enda viðnámsins í U og stingið öðrum í eitthvert gat neikvæðu brautarinnar og hinum í einhverja röðina. Það skiptir engu máli hvaða röð það er.

Tengjum svo ljóstvist, LED peru, á milli tveggja raða þannig að annar pinninn sé í röðinni sem viðnámið er í, og hinn í annarri.

Athugið: Það skiptir máli hvernig peran snýr. Stutti endinn er neikvæði endinn og þarf því að vísa til jarðar, eða í röðina sem viðnámið er tengt í. Langi endinn fer svo í nýju röðina.

Rásinni lokað

Rásinni lokað með tengivír á brauðbretti

Loks lokum við rásinni með því að tengja röð langa enda ljóstvistsins við jákvæðu brautina með tengivír.

Næsti hluti: GPIO pinni forritaður