Servo-mótor stýrt
Í þessu verkefni látum við micro:bit tölvuna stýra svokölluðum servo-mótor.
Tækjabúnaður
- Tölvu með USB tengi
- USB kapal með Micro-USB tengi sem passar í micro:bit tölvuna
- Microbit tölvu
- Servo-mótor
- Tengivíra á milli micro:bit tölvunnar og mótorsins, eftir aðferð
Tengivírar og tengibretti
Það eru margar leiðir til að tengja servo-mótorinn við micro:bit tölvuna. Servo-mótorinn er með þrjá víra: jörð, GND, afl, rauði vírinn, og svo merkið. Flestir servo-mótorar þurfa meira afl en micro:bit tölvan getur gefið og því getur þurft að tengja mótorinn sérstaklega við aflgjafa.
Ef mótorinn þinn þarf svo lítið afl að micro:bit tölvan getur sinnt því geturðu tengt hana beint við mótorinn og notað „mótor“ púslið í „Pinnar“ flokknum til að stilla stefnu mótorsins með tölugildi á milli 0 og 180. Þegar þú dregur mótor púslið fram sérðu á hermunarmyndinni til vinstri við púslflokkana hvernig þú tengir servo-mótorinn.
- Þrjá tengivíra með krókódílaklemmu öðru megin og 0.1″ Dupont kk-tengi hinum megin.
Ef mótorinn þinn þarf meira afl er afar hentugt að nota eitthvert fjölmargra tengibretta sem búin hafa verið til fyrir einmitt þetta vandamál. Í leiðbeiningunum hér fyrir neðan notum við 4tronix servo:bit brettið. Tengibrettið er svo knúið með annað hvort micro-USB tengi eða aflgjafa sem tengdur er með vírum í skrúftengi.
Við mælum með því að knýja þetta með USB snúru úr litlum orkubanka, tölvu eða venjulegu 5V hleðslutæki. Tengibrettið er með handhægum tengipinnum svo það þarf ekki fleiri tengivíra með því.
Önnur gagnleg tengibretti:
- Kitronik Compact Robotics Board frá Kitronik
- Hummingbird frá Birdbrain Technologies
Framkvæmd
Stingdu micro:bit tölvunni í raufina á servo:bit tengibrettinu.
Gættu þess að micro:bit-inn snúi rétt: skjárinn á að vísa að hliðinni sem er nær eins og á myndinni að neðan.
Stingdu servo-mótor í eina af þriggja pinna röðunum fyrir aftan micro:bit tölvuna.
Passaðu að snúa tenginu rétt. Brúni vírinn á að vera í dálknum sem merktur er G, fyrir ground, og sá appelsínuguli í dálknum sem merktur er S, fyrir signal. Fylgstu með hvaða númer er við pinnaröðina sem þú tengir mótorinn í.
Sæktu servo:bit viðbótina.
Smelltu á „Viðbætur“ neðst í listanum sem fellur niður þegar þú smellir á „Krefjandi“ neðst í púslflokkalistanum. Sláðu þar inn „ServoBit“ og veldu viðeigandi valkost. Nú bætist við nýr flokkur, „ServoBit“, rétt ofan við „Krefjandi“ hnappinn.
Raðaðu saman forritinu eins og á myndinni hér að ofan.
Gættu þess að númer mótorsins í servo-púslinu passi við röð pinnanna á servo:bit brettinu sem mótorinn var tengdur við í skrefi 2. Hornið getur verið hvaða tala sem er á milli -90° og 90°.
Tengdu micro:bit tölvuna við tölvuna sem þú ert að skrifa forritið á og hladdu því niður á micro:bit-inn.
Ef þú þarft að rifja upp hvernig það er gert geturðu rennt í gegnum þessar leiðbeiningar.
Tengdu servo:bit brettið við aflgjafa og kveiktu á því.
Þetta getur verið t.a.m. orkubanki en þú getur einnig notað micro-USB tengið sem þú notaðir til að forrita micro:bit-inn, tekið það úr sambandi við micro:bit tölvuna og stungið í samsvarandi tengi á servo:bit brettinu.
Algeng villuleit
- Er kveikt á aflgjafanum?
- Er kveikt á servo:bit brettinu?
- Er mótorinn tengdur rétt?
- Er púslið að stýra réttu mótortengi?
Ítarefni
Stutt leiðbeiningarspjald í A5 stærð er að finna með því að smella á myndina hér til hliðar.
Leiðbeiningaspjald fyrir Kitronik Compact All-In-One Robotics Board tengibretti álíkt því sem notað er hér að ofan.