Skynjarar
Í þessu verkefni lesum við af skynjurum með micro:bit tölvunni.
Tækjabúnaður

- Tölvu með USB tengi
- USB kapal með Micro-USB tengi sem passar í micro:bit tölvuna
- Microbit tölvu
Hér að neðan verður farið yfir nokkra ólíka skynjara en þetta snertir þó ekki nema yfirborðið á þeim fjölda ólíkra skynjara sem til er, og er meira til þess að koma byrjendum af stað en að vera einhver endastöð.
- MonkMakes Sensor Board
- Rakaskynjara
- Hreyfiskynjara/PIR skynjara
- Úthljóðs-fjarlægðaskynjara
Framkvæmd
Innbyggðir skynjarar
Í „Inntak“ flokknum er hægt að sækja gildi úr nokkrum skynjurum.
Ljósnemi
Ljóstvistar, LED perur, geta ekki bara gefið ljós þegar straumur er sendur í gegnum þá, heldur gefa þeir frá sér straum þegar ljós fellur á þá. Ljóstvisturinn í miðju skjásins á framhlið micro:bit-sins er útbúinn þannig að það er hægt að lesa þennan straum og þar með meta birtustigið.
Hitastig örgjörvans
Micro:bit getur lesið hitastig örgjörvans. Það er ekki nákvæmur lofthitamælir, en getur gefið nothæfa nálgun þegar tölvan hefur náð jafnvægi við umhverfið.
Þyngdarhröðunin
Micro:bit getur skynjað hreyfingu og stöðu með hröðunarnema. Þannig má bregðast við því þegar tölvunni er hallað, hún hrist eða henni snúið.
Hér var innfellt MakeCode verkefni á gamla vefnum. Bættu því aftur við sem iframe ef þú vilt halda gagnvirka dæminu:
https://makecode.microbit.org/---codeembed#pub:_dpXJX1gMXAR7
Stefna segulsviðs
Micro:bit er með segulmæli sem má nota sem áttavita eða til að greina breytingar í segulsviði.
Hljóðskynjari, micro:bit V2
Micro:bit V2 getur skynjað hljóðstyrk með innbyggðum hljóðnema.
Skynjarar gerðir fyrir micro:bit
Hljóðskynjari, MonkMakes
Ljósskynjari, MonkMakes
Hitastigskynjari, MonkMakes
Almennir skynjarar sem má nota með micro:bit
Rakaskynjari
Fjarlægðarskynjari
Hreyfiskynjari
Oft eru svokallaðir PIR, Pyroelectric InfraRed, skynjarar notaðir sem hreyfiskynjarar. Þeir byggja á því að þeir nema innrautt ljós, t.a.m. hitageislun, svo þeir virka líka í myrkri og gefa merki ef þeir mæla breytingu í birtustigi.
Margir PIR nemar þurfa 5 V spennu og því virka þeir ekki með micro:bit tölvunni sem gefur bara 3,3 V. Það þarf því að skoða hvaða spennu neminn þarf og mögulega bæta við öðrum aflgjafa.
Á heimasíðu micro:bit eru leiðbeiningar fyrir það hvernig eigi að tengja og forrita einfaldan 3,3 V PIR nema.
Adafruit er svo með ítarlegri upplýsingar um virkni PIR nema og leiðbeiningar að því hvernig tengja megi hann við ljóstvist, sem getur verið góð leið til að kanna hvort neminn sé að virka sem skyldi.
Ítarefni
- PIR movement alarm frá micro:bit
- Adafruit: PIR motion sensor