Eðlismassi vatns

Margir hafa heyrt að heitt rísi og kalt falli. Þetta kemur til vegna hitaþenslunnar. Hér að neðan er stutt myndband af einfaldri heimatilraun sem sýnir áhrif þessa.

Efni og áhöld

Í þessa tilraun þarf:

  • Tvær krúsir eða könnur fyrir heitt og kalt vatn
  • Heitt og kalt vatn (það er nóg að vera með heitt og kalt vatn úr krana; hraðsuðuketillinn er í raun óþarfur)
  • Matarlit í einum eða tveimur litum (hér notum við bláan og rauðan en það er nóg að merkja bara annan vökvann)
  • Tvö eða fjögur glös í sömu stærð.
  • Álpappir, pappaspjaldi, eða eitthvað álíka stíft og þunnt sem nær út yfir brúnina á glasinu. Á myndbandinu sést að þunni pappírinn blotnar ansi hratt þegar hann er lagður við heita vatnið. Álpappír er mjög fínn.

Framkvæmd

  1. Heitt og kalt vatn eru sett í krús eða könnu og merkt með matarlit. Í raun er nóg að lita bara annað þeirra.

Byrjum á að leggja heitt vatn ofan á kalt:

  1. Köldu vatni er hellt í glas upp að brún.
  2. Heitu vatni er hellt í glas. Það má líka vera upp að brún, en þess þarf ekki því þessu glasi verður hvolft.
  3. Álpappír eða þunnt spjald er lagt yfir glasið með heita vatninu. Hönd lögð yfir þetta lok til að halda því þéttu við og glasinu hvolft.
  4. Þegar glasið er á hvolfi má sleppa lokinu og loftþrýstingurinn heldur lokinu á og vatninu uppi.
  5. Glasið með heita vatninu er lagt ofan á glasið með kalda vatninu þannig að brúnirnar passi saman.
  6. Lokið er hægt og rólega dregið undan glösunum svo vökvarnir liggi upp að hvor öðrum.

Leggjum nú kalt vatn ofan á heitt:

  1. Heitu vatni er hellt í glas upp að brún.
  2. Köldu vatni er hellt í glas. Eins og fyrr má það vera upp að brún, en glasið sem verður ofan á þarf ekki að fera fullt.
  3. Álpappír eða þunnt spjald er lagt yfir glasið með kalda vatninu. Hönd lögð yfir sem fyrr til að halda við meðan glasinu er hvolft.
  4. Þegar glasið er á hvolfi má sleppa lokinu og loftþrýstingurinn heldur lokinu á og vatninu uppi.
  5. Glasið með kalda vatninu er lagt ofan á glasið með heita vatninu þannig að brúnirnar passi saman.
  6. Lokið er hægt og rólega dregið undan glösunum svo vökvarnir liggi upp að hvor öðrum.