Lífsglaðir litir
Mjólk er um margt merkilegur vökvi. Hér sýnir Vala okkur skemmtilega tilraun sem blandar saman sköpunargleði og forvitni svo úr verður litfögur rannsókn.
Efni og áhöld
Í þessa tilraun þarf:
- Mjólk
- Matarlit
- Uppþvottalög, á fljótandi eða föstu formi
- Disk eða skál
- Eyrnapinna, valkvæmt; það má líka nota puttana
Framkvæmd
- Helltu þunnu lagi af mjólk á disk eða í skál.
- Láttu nokkra dropa af matarlit í mjólkina.
- Dýfðu eyrnapinna, öðru álíka verkfæri eða bara putta, með smá uppþvottalegi í mjólkina nálægt matarlitnum.
Prófaðu svo að breyta:
- Dreifingu á litnum.
- Dýpt á mjólkinni.
- Stærð disksins.
- Gerð sápunnar, t.d. uppþvottalegi, uppþvottadufti, þvottaefni eða handsápu.
Hvað er að gerast?
Mjólk er aðallega úr vatni með fitudropum sem blandast ekki við vatnið. Vatn hefur mjög háa yfirborðsspennu svo ef við látum matarlit út í það flæðir hann takmarkað út.
Uppþvottalögurinn leysir upp fitudropana og lækkar yfirborðsspennu mjólkurinnar. Það veldur því að uppleysta sápu-fitu blandan, og matarliturinn, flæðir út eftir yfirborði vökvans. Þetta gerist án matarlitsins en hann sýnir mun betur hvað er að gerast.