Ský í flösku
Skýin á himni eru gerð úr örsmáum dropum, en hvað þarf til að mynda þau? Martin og sonur hans skoða það í þessari einföldu tilraun.
Efni og áhöld
Í þessa tilraun þarf:
- Plastflösku með tappa, eða eitthvað álíka ílát sem hægt er að kreista
- Heitt vatn, t.d. úr krana
- Eldspýtur, eða kerti og eldfæri
Framkvæmd
Fyrir samanburðinn án sótagna
- Helltu botnfylli af heita vatninu í flöskuna.
- Skrúfaðu tappann á.
- Kreistu flöskuna og slepptu snögglega.
Til að fá skýið eða þokuna með kerti
- Kveiktu á kerti.
- Helltu botnfylli af heita vatninu í flöskuna.
- Blástu á kertið, sjúgðu smá reyk upp í flöskuna og skrúfaðu tappann á.
- Kreistu flöskuna og slepptu snögglega.
Til að fá skýið eða þokuna með eldspýtu
- Helltu botnfylli af heita vatninu í flöskuna.
- Kveiktu á eldspýtu og leyfðu loganum að stækka.
- Blástu á eldspýtuna, sjúgðu smá reyk upp í flöskuna og skrúfaðu tappann á.
- Kreistu flöskuna og slepptu snögglega.