Hexaflexagonaföndur
Flexagonar eru skemmtileg rúmfræðileg fyrirbæri sem gerð eru úr flötum renningum, oft úr pappír, og brotin og fest saman á ákveðna vegu til að hægt sé að beygla eða velta, „flexa“, þannig að nýjar hliðar vísi út.
Til eru ýmsar gerðir flexagona en hér að neðan eru leiðbeiningar fyrir hexa-hexa-flexagon.
Sækja útprentanlegar leiðbeiningar
Efniviður
- Langur renningur, t.d. úr pappír, eða útprentanlegt mynstur
- Skæri
- Límstifti
- Blýantur
- Skriffæri, skemmtilegt er að hafa liti til að teikna myndir á hliðarnar
Framkvæmd
1
Klipptu út renning sem samanstendur af 19 jafnhliða þríhyrningum.
Þú getur prentað út þetta mynstur en eins er hægt að taka langan renning og beygla ítrekað til að marka fyrir þríhyrningana.

2
Merktu þríhyrningana á framhliðinni laust með blýanti, t.d. með tölustöfum 1, 2 og 3, eins og svarar til litanna á myndinni að ofan, auk þríhyrninganna X á framhliðinni og Y á bakhliðinni. Það má merkja bakhliðina með 4, 5 og 6, en þess þarf ekki.
3
Brjóttu renninginn eftir rauðgulu línunni svo úr verði upprúllaður renningur.

4
Brjóttu svo upprúllaða renninginn eftir rauðgulu línunum svo úr verði sexhyrningur úr eins þríhyrningum.
Ef þú merktir þá 1, 2 og 3 ættu allir merktir 1 að snúa upp.

5
Límdu núna X og Y saman með límstifti og þá er hexahexaflexagoninn þinn tilbúinn.
Til að flexa hexahexaflexagoninn þinn, brýtur þú þrjú horn hans niður, dalbrot, og þrjú upp, fjallbrot. Ýttu dalbrotunum saman þar til þau snertast og opnaðu miðjuna eins og blóm sem er að springa út.
Ítarefni
- Útprentanlegar leiðbeiningar.
- Flexagon á ensku Wikipediu.
- Vihart hefur gert nokkur myndbönd um hexaflexagona:
- Einfaldari en hexaflexagonarnir eru tetraflexagonarnir. Hér eru nokkur myndbönd tengd hexatetraflexagonum:
- Myndband af gerð hexatetraflexagon, ferningslaga flexagon með sex hliðar.
- The Forgotten Flexagon — Numberphile