Einfaldur mótor
Þetta verkefni gengur út á það að búa til mjög einfaldan mótor.
Efni og áhöld

- Koparvír
- AA rafhlaða
- Tveir 15 × 5 mm neodymium seglar, eða aðrir álíka
Til að gera mótorinn eilítið stöðugri má dælda jákvæða pól rafhlöðunnar með hamri og nagla eða einhverju álíka.
Framkvæmd
Láttu tvo segla festast við neikvæða skaut rafhlöðunnar.
Þeir mega snúa á hvorn veginn sem er; það breytir bara áttinni sem mótorinn snýr í.
Taktu u.þ.b. 40 cm bút af koparvír og fjarlægðu einangrunina af honum.
Gættu að skera þig ekki. Ef blaðinu er beint of nærri koparvírnum stingst það inn í hann, en með smá lagni má flá vírinn í einni lotu.



Vefðu koparvírnum um seglana þannig að endarnir standi út til hliðanna.
Gættu þess að vírinn sé ekki of þétt vafinn um seglana. Þeir eiga að geta snúist innan í koparlykkjunni.
Beyglaðu vírana þannig að annar eða báðir krækist ofan á jákvæða skautið.
Nú á koparvírinn að snúast hring eftir hring um rafhlöðuna.



Ábendingar
- Skrefin að ofan eru bara ein leið til að búa til svona mótora. Þá má gera á marga vegu. Í öllum tilvikum þarf mótorinn að snerta bæði skautin, viðnámið að vera lítið, og mótorinn að halda jafnvægi á jákvæða skautinu.
- Prófaðu endilega ólíkar útgáfur og sjáðu hvaða áhrif það hefur að gera mótora sem eru ólíkir í laginu.
- Til að mótorinn haldist betur á jákvæða skautinu má líka slá laust ofan á það með hamri og nagla til að búa til dæld sem mótorinn getur setið í.



Hvað er í gangi?
Raf- og segulfyrirbæri eru ekki bara svipuð að ýmsu leyti, heldur samofin og í raun bara ólíkar hliðar sama penings. Rafstraumur myndar segulsvið og segulsvið verkar með krafti á rafstraum.
Þegar rafstraumurinn flæðir frá jákvæða skauti rafhlöðunnar niður að því neikvæða, þar sem segullinn er, flæðir hann að hluta til þvert á segulsviðið sem myndar kraft hornrétt á bæði segulsviðið og rafstrauminn. Það veldur krafti sem vísar réttsælis eða rangsælis um snúningsás mótorsins og ýtir honum af stað.
Ítarefni
Önnur skyld verkefni, á ensku, í boði Exploratorium:
Sýndartilraunir frá PhET:
- Lögmál Faradays sýnir hvernig breytilegt segulsvið getur spanað upp rafstraum í koparlykkju.