Rafrásir með perustæðum
Þetta verkefni gengur út á það að búa til einfalda rafrás með perustæðum og krókódílaklemmum.
Efni og áhöld

- Aflgjafi
- Perustæði og perur
- Krókódílaklemmur
Það getur verið gaman að vera með önnur tæki eins og rafmagnsmótor til að tengja inn í rafrásina.
Framkvæmd
Stök pera
Stilltu aflgjafann á hentugt spennugildi.
Perurnar sem notaðar eru í þessum leiðbeiningum eru gerðar fyrir spennuna 4,5 V og strauminn 0,1 A.
Tengdu tvær krókódílaklemmur við sitt hvort skaut aflgjafans, + og −.
Það er gott að hafa þær í ólíkum litum. Hefðin er að hafa rauðan í jákvæða pólnum og svartan í þeim neikvæða.
Tengdu hinn enda krókódílaklemmanna við sitt hvort perutengið.
Nú ætti að kvikna ljós.



Hliðtengdar perur
Legðu annað perustæði til hliðar við það sem er tengt við rásina.
Tengdu perustæðin saman eins og á myndinni.
Nú ættirðu að fá ljós á báðum perunum.
Tengdu nú fleiri perur við hlið hinna.
Hvernig breytist ljósmagnið eftir því sem þú bætir fleiri perum við? Hvað segir þetta um strauminn sem flæðir um hverja peru? Hvað með strauminn sem rafhlaðan gefur frá sér?



Raðtengdar perur
Stilltu upp rafrás með einu perustæði eins og var í fyrsta hlutanum.
Aftengdu aðra krókódílaklemmuna og tengdu við annað perustæði.
Tengdu perustæðin saman með þriðju krókódílaklemmunni. Nú ættirðu að fá ljós.
Tengdu nú fleiri perur í röð.
Hvernig breytist ljósmagnið eftir því sem þú bætir fleiri perum við? Ljósmagnið er í réttu hlutfalli við rafstrauminn. Hvað segir þetta um strauminn sem flæðir um rásina eftir því sem þú bætir fleiri perum við?



Ítarefni
Sýndartilraunir frá PhET: