Nóg var um að vera í Háskóla Íslands á Háskóladaginn 2019. Opið var fyrir gesti gangandi í Vísindasmiðjunni í Háskólabíó. Einnig var Sprengjugengið með sýningu og Vísindabíó í gangi.
Opið var í allskonar tæki, tól, tilraunir, þrautir, leikir og óvæntar uppgötvanir var í boði fyrir alla aldurshópal sem smiðjan býður upp á og Stjörnu-Sævar mætti með alvöru "geimsteina" frá tunglinu og mars.
- Gestir á öllum aldri fengu að kynnast undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, teikna listaverk með rólu, leika á syngjandi skál, smíða vindmyllu, skoða tungl, stjörnur og loftsteina og ótalmargt fleira.
- Hitamyndavélin varpaði óvæntu ljósi á innri mann.
- Hægt var að móta fjöll, höf og eyjar í landslagssandinum.
- Vindorkan beisluð með fögrum vindmylluvængjum.
- Leyndardómar myrkraherbergisins: botnlaus brunnur, syngjandi skál, ljóslifandi litir, furðuspeglar, huldugrísir, mannlegur hátalari og logandi flauta
Skemmtilegur dagur í alla staði!