Á Menningarnótt opnar Vísindasmiðja Háskóla Íslands farandsmiðju í Hörpu, miðstöð menningar og mannlífs. Á komandi mánuðum verður farandsmiðjan fastur liður í nýrri Barnamenningardagskrá Hörpu og stendur smiðjan gestum á öllum aldri til boða þeim að kostnaðarlausu og munum við auglýsa þá dagskrá von bráðar
Í Vísindasmiðjunni geta gestir á öllum aldri upplifað undraverða eiginleika ljóss, lita og hljóða með tilraunum, leik og óvæntum uppgötvunum. Með lifandi og gagnvirkum vísindum er einnig í boði að teikna listaverk með rólu, leika á syngjandi skál, kynnast furðulegum efnasamböndum með Sprengju-Kötu og kanna sjálfan himingeiminn með Stjörnu-Sævari.
Í boði verða tilraunir, þrautir, tæki og tól, leikir og spennandi vinnusmiðjur fyrir alla aldurshópa;
- viltu búa til þitt eigið vasaljós í lóðunarsmiðju?
- spreyta þig á vindmyllugerð og orkunotkun?
- eða kynnast óvenjulegri hljóðfæragerð?
Allt þetta og meira til geta gestir spreytt sig á í farandsmiðjunni.
Í Vísindasmiðjunni er leitast við að gera hið ósýnilega sýnilegt og hljóð berast úr óvæntum áttum. Vísindasmiðjan mun einnig taka þátt í ævintýralegum könnunarleiðangri um Hörpu, þar sem tækni og vísindi leika stórt hlutverk, enda býr listin í vísindunum og vísindin í listinni og verða þau sjaldan aðskilin.
Farandsmiðja Vísindasmiðjunnar í Hörpu er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands.
Kl 13 -17
Flói og Ríma - fyrir framan Kaldalón
Allir velkomnir – ÓKEYPIS FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA