Kl 13 -16
Fundarherbergin Vísa og Stemma á fyrstu hæð
Allir velkomnir – ÓKEYPIS FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Vísindasmiðja Háskóla Íslands býður upp á vinnusmiðjur fyrir alla fjölskylduna þar sem áherslan er m.a. á að tengja saman vísindi og listir með margvíslegum hætti.
Í boði eru spennandi vinnusmiðjur fyrir alla aldurshópa; tilraunir, þrautir, tæki og tól.
- Viltu búa til þitt eigið vasaljós í lóðunarsmiðju?
- Spreyta þig á vindmyllugerð og orkunotkun?
- Forrita þína eigin tónlist í Scratch og Sonic Pi?
- Kynnast óvenjulegum hljóðfærum?
Takmarkaður fjöldi gesta kemst að í vinnusmiðjunum en hver þeirra stendur í 20 - 40 mínútur og nóg annað hægt að uppgötva, skoða og gera meðan beðið er eftir lausu plássi.
Á sama tíma býður Harpa upp á Skoðunarferðir um leynistaði Hörpu fyrir forvitna krakka og tónleikaröðin Reikistjörnur verður með tónleika með tónlistarkonunni GDRN. Svo ýmislegt verður í boði fyrir alla fjölskylduna.
Vísindasmiðjan í Hörpu er opin kl.13 til 16, aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnar.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands og er hluti af fjölskyldudagskrá Hörpu veturinn 2019-2020.
https://visindasmidjan.hi.is
https://www.facebook.com/visindasmidjan/