Samstarfsverkefni
Sjóvísindasmiðjur
Sjóminjasafnið rekur sýninguna
Fiskur og fólk
í húsnæði safnsins við Grandagarð. Vísindasmiðjan kom að þróun fjögurra vinnusmiðja tengdri henni.
Vinnusmiðjurnar snúast um staðsetningu skipa á rúmsjó með sextanti, endurkast bylgja eins og notaðar eru í fisksjár, gíra með trissum til hífingar á afla og orkunýtingu farskipa.
Vidubiology
Menntavísindasvið, í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands, tók þátt í Erasmus-verkefninu Vidubiology sem fjallar um að vekja áhuga og dýpka skilning barna og unglinga á líffræðilegum viðfangsefnum með notkun myndmiðlunar.
Að nota ljósmyndun og myndvinnslu í náttúrufræðikennslu gefur fjölmörg tækifæri til að nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt og efla áhuga hjá fjölbreyttum nemendahópi.

SciSkills 2.0
SciSkills 2.0 er NordPlus-verkefni þar sem þátttökustofnanirnar deila reynslu af forritunarsmiðjum og þróa vinnusmiðjur tengdar símenntun kennara á sviði forritunar.
Þátttökustofnanirnar eru AHHAA, Teknikens Hus og Vísindasmiðjan. Verkefnið skiptist í þrjá þætti:
- Sameiginlegan fund á Íslandi í september 2017
- Kennarasmiðjur sem áttu að eiga sér stað milli október 2017 og febrúar 2018.
- Samantektarfund í mars 2018.

SFS vísindasmiðjur á yngstu stigum
Veturinn 2017–2018 setti Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, SFS, í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands saman starfshóp um eflingu vísindakennslu í leikskóla, yngstu stigum grunnskóla og á frístundaheimilum.
Hópurinn fundaði nokkrum sinnum yfir veturinn og lagði grunninn að áframhaldandi vinnu við málaflokkinn.

BaltNord verkefnið
Veturinn 2016–2017 vann Vísindasmiðjan að Nordplus Horizontal verkefninu
BaltNord network for science communication, sem miðaði að því að auka fjölbreytni og styðja við áframhaldandi þróun vísindamiðlunar í Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndunum.
