Farsælt samstarf Verkfræðingafélagsins og Vísindasmiðjunnar

Verkfræðingafélags Íslands og Vísindasmiðja Háskóla Íslands hafa undanfarin ár unnið sameiginlega að því markmiði að efla áhuga ungs fólks á vísindum, tækni og nýsköpun og efla jafnt kennara sem nemendur á því sviði. 

Formlegt samstarf Vísindasmiðjunar og Verkfræðingafélagsins hófst haustið 2018 og þá var hafist handa við að útbúa sérstakt fræðsluefni fyrir kennara og nemendur um forritun. Næsta ár var sérstök áhersla lögð á fræðsluverkefni fyrir skóla um loftslagsbreytingar og hverfist það verkefni um notkun þekkingar til að finna lausnir tengdar orkunotkun.

Nú hefur samstarfssamningur verður staðfestur þriðja árið og var undirritaður í upphafi nýs árs af Svönu Helen Björnsdóttur, formanni VFÍ og Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ. 

Tilraunaverkefni á vettvangi félagsmiðstöðva

Að þessu sinni er á döfinni tilraunaverkefni í samstarfi við félagsmiðstöðvar um þróun fræðsluverkefna sem getur farið fram á þeirra vettvangi. Samstarfssamningurinn gerir einnig ráð fyrir að Vísindasmiðjan taki sem fyrr þátt í árlegum Fjölskyldudegi verkfræðinnar sem haldinn er í ágúst, en undanfarin ár hefur fjöldi fólks lagt leið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og kynntist af eigin raun tækjum, tólum og tilraunum Vísindasmiðjunnar.

Hafa tekið á móti hátt í 30 þúsund gestum

Vísindasmiðja Háskóla Íslands var opnuð vorið 2012 og aðsetur hennar er í Háskólabíói en starfsemin fer líka að miklu leyti fram í farandsmiðjum af margskonar tagi, til dæmis í Hörpu, á bókasöfnum, í Fjölskyld- og húsdýragarðinum og víðar. Leiðbeinendur í Vísindasmiðjunni eru kennarar og nemendur Háskóla Íslands og er hún opin grunnskólahópum fjóra daga vikunnar, þeim að kostnaðarlausu. 

Vísindasmiðjan nýtur afar mikilla vinsælda og hefur verið nær fullbókuð frá því að hún var opnuð. Áætlað er að hátt í 30 þúsund grunnskólabörn hafi nú heimsótt Vísindasmiðjuna og tekið þátt í fjölmörgum viðburðum smiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu og í Háskólalestinni.

Frétt af heimasíðu Háskóla Íslands

ungmenni í Vísindasmiðjunni
ungmenni í Vísindasmiðjunni
Vísindasmiðjan og Verkfræðingafélag Íslands
Svana Helen Björnsdóttir, formaður VFÍ og Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ