Gleðileg jól!

Árið 2015 var viðburðarríkt hjá Vísindasmiðjunni. Aðstaðan okkar stækkaði, opnum dögum fjölgaði og nýtt starfsfólk bættist í hópinn. 

Tæplega 3000 grunnskólanemendur komu til okkar í skipulagðar heimsóknir á árinu. Þeir fengu meðal annars að kynnast eðlisfræði, stjörnufræði, jarðfræði, vísindaheimspeki, Vísindavefnum, vindmyllum og vindorku. Þá fengum við einnig fjölmarga góða gesti til okkar á þeim dögum sem var opið fyrir almenning.

Við óskum gestum Vísindasmiðjunnar og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum samveruna á liðnu ári. 

Sjáumst árið 2016!