Leikur að rafrásum 18.ágúst 2020 - skráning

Fullt er á þessa kennarasmiðju!

Hafið samband í netfangið visindasmidjan@hi.is ef þið viljið fá tilkynningar um fleiri námskeið.

Þriðjudaginn 18. ágúst 2020 kl. 10-15

Vinnusmiðja fyrir náttúrufræðikennara á mið- eða unglingastigi sem vilja auka skilning sinn á rafmagnsfræði og leikni sína í einföldum rafmagnsfræðiverkefnum sem nýta má í kennslu.

Markmið vinnusmiðjunnar er að þátttakendur rifji upp eða bæti þekkingu sína og skilning á nokkrum fyrirbærum í rafsegulfræði og kynnist einföldum verkefnum sem nýta megi kennslu.

Í vinnusmiðjunni er farið yfir hugtökin straumur, spenna og viðnám sem ólíkar hliðar regnhlífarhugtaksins "rafmagn" og einfaldar samlíkingar gefnar fyrir merkingu þeirra. Þátttakendur setja saman einfaldar rafrásir og kynnast áþreifanlega muninum á hliðtengingu og raðtengingu, og víxlverkun raf- og segulsviða. Farið verður yfir virkni fjölmæla, hvernig þeir eru notaðir til að mæla rafstraum, spennu og viðnám, og hvað þarf að hafa í huga.

Vinnusmiðjan er verkleg og Vísindasmiðjan útvegar öll kennslugögn.