Smiðjuyfirlit

Yfirlit yfir smiðjur Vísindasmiðjunnar (t.d. lóðunarsmiðju, hljóðfæragerð, rafrásagerð...)

Lóðunarsmiðja

Inni í öllum raftækjum, hvort sem það er farsími, internetbeinir, fjarstýring eða stafrænt úr, eru vírar sem tengja hina ýmsu íhluti saman. Yfirleitt eru vírarnir greiptir í svokallaða prentplötu. Platan úr trefjagleri með þunnu lakklagi sem einangrar og ver koparvírana. Lakkið er yfirleitt grænt á litinn sem gefur prentplötunum áþekkt útlit.