Þjarkar, þrautir og Ungir vísindamenn - erindi á Ráðstefnu um náttúrufræðimenntun

Þjarkar, þrautir og Ungir vísindamenn - erindi á Ráðstefnu um náttúrufræðimenntun

 Ráðstefna um náttúrufræðimenntun verður haldin í netheimum þetta árið og verður Vísindasmiðjan með þrjú erindi:
 
  • Vísindasýningar -  föstudaginn 19. mars kl. 15:20-15:40
  • Þjarkar, þrautir og Ungir vísindamenn - laugardaginn 20. mars kl. 10:10-10:30
  • Kennaranámskeið og verkfærakistur - laugardaginn 20. mars kl. 10:30-10:50

 

Vísindasýningar

Vísindasýningar (Science Fairs) eru haldnar í grunn- og framhaldsskólum um víða veröld. Á Íslandi hafa kennarar og skólar verið að þróa og prófa sig áfram með þetta form. Í málstofunni á rástefnunni munum við fjalla stuttlega um útfærslu vísindasýninga, heyra reynslusögur, skiptast á hugmyndum og horfa til framtíðar. Þrír reyndir kennarar, þær Dögg Lára úr Langholtsskóla, Hildur Arna úr Skarðshlíðaskóla og Laurie Berg úr Alþjóðadeildinni í Landakotsskóla, munu kynna sínar útfærslur og þær bjargir sem þær nýta í kennslunni.

 

Þjarkar, þrautir og Ungir vísindamenn

Háskóli Íslands leggur áherslu á að glæða áhuga ungs fólks á vísindum og fræðum og hefur staðið fyrir margs konar verkefnum í þeim tilgangi. Tvö þessara verkefna verða tekin fyrir í þessari málstofu; First Lego League keppnin fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10 – 16 ára og Landskeppnin Ungir Vísindamenn fyrir ungmenni á aldrinum 15-20 ára. En þessi verkefni eiga það m.a. sameiginlegt að efla færni ungmenna í að tileinka sér vísindaleg vinnubrögð með því að efla hæfni þeirra til að vinna að rannsóknarverkefnum með auknu frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum.

 

Kennaranámskeið og verkfærakistur

Vísindasmiðja HÍ hefur sett sér stefnu um stuðning við störf náttúrufræðikennara, m.a. með því að kynna aðferðir og búnað við verklega kennslu. Í vinnustofunni verður fjallað um tvær nátengdar leiðir sem við höfum reynt; annars vegar símenntunarnámskeið um afmörkuð efni og hins vegar safn af tólum og búnaði sem við köllum verkfærakistur eins og t.d. Ljósakassann sem Vísindasmiðjan gaf öllum grunnskólum landsins fyrir nokkrum árum.

Dagsetning: 
Saturday, March 20, 2021 -
10:00 to 10:30