Vísindasmiðjan í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 27.ágúst

Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður á faraldsfæti um komandi helgi en þá setur smiðjan upp farandsýningu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Tilefnið er fjölskylduhátíð Verkfræðingafélagsins, sem býður til dagskrár fyrir alla fjölskylduna 27.ágúst, og er Vísindasmiðjan hluti af hátíðinni. Farandsýning Vísindasmiðjunnar verður jafnframt opin öllum gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins þennan sunnudag og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.

Í Vísindasmiðjunni verða í boði tilraunir, þrautir, tæki, tól, leikir og óvæntar uppgötvanir fyrir alla aldurshópa. Gestir geta meðal annars kynnst undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, teiknað listaverk með rólu, leikið á syngjandi skál, smíðað vindmyllu og margt fleira. Öll fjölskyldan getur upplifað vísindin með lifandi hætti, uppgötvað og leikið sér af hjartans lyst.

Verið hjartanlega velkomin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á sunnudaginn.