Vísindasmiðjan í Hörpu

Vísindasmiðjan í Hörpu

Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður með farandsmiðju í Hörpu, miðstöð menningar og mannlífs. Á komandi mánuðum verður farandsmiðjan fastur liður í nýrri fjölskyldudagskrá Hörpu og stendur smiðjan gestum á öllum aldri til boða þeim að kostnaðarlausu.

Í Vísindasmiðjunni geta gestir á öllum aldri upplifað undraverða eiginleika ljóss, lita og hljóða með tilraunum, leik og óvæntum uppgötvunum. Með lifandi og gagnvirkum vísindum er einnig í boði að teikna listaverk með rólu, leika á syngjandi skál, kynnast furðulegum efnasamböndum með Sprengju-Kötu og kanna sjálfan himingeiminn með Stjörnu-Sævari.

Í boði verða tilraunir, þrautir, tæki og tól, leikir og spennandi vinnusmiðjur fyrir alla aldurshópa;

  • viltu búa til þitt eigið vasaljós í lóðunarsmiðju?
  • spreyta þig á vindmyllugerð og orkunotkun?
  • eða kynnast óvenjulegri hljóðfæragerð?

Allt þetta og meira til geta gestir spreytt sig á í farandsmiðjunni.

Í Vísindasmiðjunni er leitast við að gera hið ósýnilega sýnilegt og hljóð berast úr óvæntum áttum. Vísindasmiðjan mun einnig taka þátt í ævintýralegum könnunarleiðangri um Hörpu, þar sem tækni og vísindi leika stórt hlutverk, enda býr listin í vísindunum og vísindin í listinni og verða þau sjaldan aðskilin.

Farandsmiðja Vísindasmiðjunnar í Hörpu er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands. 

Kl 13 -16
Flói og Ríma - fyrir framan Kaldalón
Allir velkomnir – ÓKEYPIS FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA

 

Dagsetning: 
Saturday, Janúar 25, 2020 -
13:00 to 16:00