Mjólk er um margt merkilegur vökvi. Hér sýnir Vala okkur skemmtilega tilraun sem blandar saman sköpunargleði og forvitni svo úr verður litfögur rannsókn.
Efni og áhöld
Í þessa tilraun þarf:
- Mjólks
- Matarlit
- Uppþvottalög (á fljótandi eða föstu formi)
- Disk eða skál
- Eyrnapinna (valkvæmt; það má líka bara nota puttana)
Framkvæmd
- Helltu þunnu lagi af mjólk á disk eða í skál.
- Láttu nokkra dropa af matarlit í mjólkina.
- Dýfðu eyrnapinna (eða öðru álíka verkfæri; eða bara putta) með smá uppþvottalegi í mjólkina nálægt matarlitnum.
Prófaðu svo að breyta:
- Dreifingu á litnum.
- Dýpt á mjólkinni.
- Stærð disksins.
- Gerð sápunnar (uppþvottalögur/uppþvottaduft/þvottaefni/handsápa).
Hvað er að gerast?
Mjólk er aðallega úr vatni með fitudropum sem blandast ekki við vatnið. Vatn hefur mjög háa yfirborðsspennu svo ef við látum matarlit út í flest hann takmarkað út. Uppþvottalögurinn leysir upp fitudropana og lækkar yfirborðsspennu mjólkurinnar sem veldur því að uppleysta sápu-fitu blandan (og matarliturinn) flest út eftir yfirborði vökvans. Þetta gerist án matarlitsins en hann sýnir mun betur hvað er að gerast.