Þetta verkefni gengur út á það að mæla spennu aflgjafa og í rafrás.
Efni og áhöld
- Rafhlaða
- Rafrás
- Spennumælir (t.d. fjölmælir)
Framkvæmd
1
Settu upp rafrás með spennugjafa og þremur raðtengdum ljósaperum.
.
2
Taktu spennumælinn (stilltu fjölmælinn á jafnspennu og hæfilega næmni), tengdu sitt hvort þreifaratengið við sitt hvora hlið hverrar peru fyrir sig, og skráðu gildin hjá þér.
.
3
Tengdu nú sitt hvort þreifaratengið við sitt hvort tengi spennugjafans og skráðu gildið hjá þér.
.
4
Endurtaktu þetta nú fyrir hliðtengda rafrás. Geturðu fundið/staðfest reglu fyrir samband spennufalls yfir hverja peruna fyrir sig og spennu spennugjafans?
.
Hvað er í gangi?
Ítarefni
Sýndartilraunir frá PhET: