 Glært valsað límband (þetta klassíska) lagt á plastþynnu (t.d. plexigler) og skoðað með því að leggja á milli skautunarsía. Föndursmiðja þar sem listaverk eru gerð með því að framkalla liti með misþykkum stöflum límbands sem snúa samsíða eða ólíkt.
Glært valsað límband (þetta klassíska) lagt á plastþynnu (t.d. plexigler) og skoðað með því að leggja á milli skautunarsía. Föndursmiðja þar sem listaverk eru gerð með því að framkalla liti með misþykkum stöflum límbands sem snúa samsíða eða ólíkt.
Límið límband á bökunarpappír og skerið út munstur með skærum eða beittum hníf á skurðarplatta. Fjarlægið svo límbandið af pappírnum og leggið á plastþynnuna. Endurtakið svo og byggið upp nokkur lög af límbandi. Athugið að með því að leggja límbandið í sömu stefnu fást nýir litir eftir því hversu þykkur staflinn verður, en með því að leggja límbandið þvert á það sem undir er núllast áhrifin út.
Efni og áhöld
 Í þessari vinnusmiðju ætlum við að búa til "ósýnilegt" listaverk úr límbandi og skoða hvernig það birtist þegar við bregðum skautunarsíum beggja vegna þess.
Í þessari vinnusmiðju ætlum við að búa til "ósýnilegt" listaverk úr límbandi og skoða hvernig það birtist þegar við bregðum skautunarsíum beggja vegna þess.
- Glært undirlag. Plexiglerplata virkar vel en glærur ganga einnig.
- Glært límband. Til að geta skorið ólík mynstur út úr því er gott að hafa það breitt (t.d. tveggja tommu/pökkunarlíband).
- Skurðarhnífur, dúkahnífur eða skæri
- Skurðarbretti (ef þú notar hníf til að skera út formin)
- Smjörpappír
- Tvær skautunarsíur
Framkvæmd
Límdu límbandsbút á smjörpappírinn.
			Smjörpappírinn gerir það auðveldara að skera eða klippa út formin án þess að límbandið límist við sjálft sig.
Skerðu eða klipptu út nokkur form. 
			Límbandið hefur ólíka eiginleika þvert á og samsíða límbandsrúllunni. Gættu þess að fylgjast með hvernig áttirnar snúa á límbandsforminu þínu.
 
  
 
Límdu formin á undirlagið (plexiglerplötuna/glæruna).
			Hvert lag af límbandi mun gefa nýjan lit. Ef límböndin liggja öll samsíða mun hver þykkt gefa sinn lit. Ef tveir límbandsbútar liggja þvert á hver annan (mundu að áttirnar miða við hvernig límbandið lá á rúllunni) munu þeir vega á móti hvor öðrum þegar þeir eru skoðaðir með skautunarsíunum og því munu ekki sjást nein áhrif af þeim.
Legðu listaverkið þitt á milli skautunarsía.
			Athugaðu að afstaða listaverksins breytist eftir því hvernig þú snýrð síunum og listaverkinu. Mest áhrif fást þegar skautunarstefnur síanna eru hornréttar hvor á aðra (þegar ekkert ljós kemst í gegnum þær) og þegar skautunarstefnur límbandsins (miðað við legu þess á rúllunni) eru mitt á milli skautunarstefna síanna.
			Prófaðu að snúa þessu og sjá hvernig litirnir birtast og hverfa á víxl.
 
  
 
Ýmsar útfærslur
Skoðaðu listaverkið á myndvarpa.
			Ef þú ert með aðgang að myndvarpa er mjög skemmtilegt að varpa gegnsæju listaverkinu upp á vegg.
